Skemmtilegar bækur fyrir börn og unglinga!

  • Post published:

Við hjá Bókasafni Árborgar viljum leggja okkar af mörkum til að efla læsi barna og unglinga og höfum því útbúið lista yfir skemmtilegar bækur fyrir hressa krakka á aldrinum 8-12 ára og annan lista fyrir unglingana okkar.

Listarnir liggja frammi í barna- og unglingadeild bókasafnsins og bíða eftir að verða gripnir af lestrarþyrstum krökkum á öllum aldri.

Hlökkum til að sjá ykkur

Starfsfólk Bókasafns Árborgar.