Við hjá Bókasafni Árborgar viljum leggja okkar af mörkum til að efla læsi barna og unglinga og höfum því útbúið lista yfir skemmtilegar bækur fyrir hressa krakka á aldrinum 8-12 ára og annan lista fyrir unglingana okkar.
Listarnir liggja frammi í barna- og unglingadeild bókasafnsins og bíða eftir að verða gripnir af lestrarþyrstum krökkum á öllum aldri.
Hlökkum til að sjá ykkur
Starfsfólk Bókasafns Árborgar.