Vorsýningin að byrja að taka á sig mynd. Átt þú eitthvað sem myndi auðga sýninguna? útsaum, púða, svuntu, sykurtöng, bækur eftir Guðrúnu frá Lundi. Ef þú vilt vera með hafðu þá endilega samband við okkur!
Hápunktur sýningarinnar verður kaffiboð laugardaginn 11. maí kl. 14.00. Þá verður upplestur úr bókum Guðrúnar, umfjöllum um hana, tónlist og kaffi. Nauðsynlegt að koma með kaffibolla sem fyrst, til að vera með.