Vigdís Heiðrún Viggósdóttir sýnir ljósmyndir í Listagjá Bókasafns Árborgar í febrúar. Hún er búsett í Grindavík en fædd á Skagaströnd. Hún er að útskrifast úr Ljósmyndaskólanum núna í febrúar. Sérían heitir Samruni, en í henni varpar hún fram á myndrænan hátt áföllum lífsins, úrlausn og þroska manneskjunnar. Hún persónugerir móður jörð og líkir rusli við áföll. Myndirnar sýna ákveðin stað í ferlinu, Þessu ferli lýsir hún með átta orðum sem öll byrja á S: sorp/sorg/sviði/seigla/samruni/sátt/sæla/sigur. Vigdís hefur sýnt verk sín víða síðastliðin 2 ár. Sýningin stendur til 15. mars.
