• Til að fá lánuð gögn á safninu er nauðsynlegt að eiga bókasafnsskírteini.

Allir geta fengið bókasafnsskírteini.

Börn upp að átján ára aldri fá frítt skírteini hjá okkur.

Þangað til börn hafa náð átján ára aldri þarf annað foreldri, eða forráðamaður, að ábyrgjast skírteini barns síns.

Nýtt skírteini kostar 3.800 kr. árgjald. Lánþegar sem eiga lögheimili í Árborg fá hinsvegar afslátt og þurfa að borga 2.550 kr. árgjald.

Heimilt er að framlengja útlán í gegnum síma og á staðnum án þess að bók fylgi með, en allra þægilegast er þó að gera það í gegnum leitir.is.

Útlán og skil

Bækur, hljóðbækur, geisladiskar og tímarit eru yfirleitt lánuð í 30 daga en nýjar bækur eru stundum lánaðar í 14 daga (það efni er auðkennt með miða á kápu). Kökuform lánast í sjö daga.

Almenningstölvur:

Allir geta fengið aðgang að tölvum hjá okkur, hálftíma aðgangur er á 280 kr.

Allir sem koma með sínar eigin tölvur eða snjalltæki fá aðgang að þráðlausu neti, endurgjaldslaust.

Sektir:

Gögn safnsins skulu innheimt þegar lánstími þeirra hefur runnið út.

Sekt reiknast á vanskil bóka, hljóðbóka og tímarita samkvæmt gjaldskrá.

Allra ábyrgð og hagur

Það er allra hagur að vel sé farið með safnefnið. Glatist eða skemmist safnefni í vörslu lánþega er það á hans ábyrgð og þarf hann að greiða andvirði þess. Forráðamenn bera ábyrgð á því efni sem börn fá að láni.

Verið velkomin á safnið!