Fimmtudaginn 12. nóvember kl. 18:00 koma tvær nýjar skáldkonur, Jenný Kolsöe og Ása Hafsteinsdóttir í heimsókn til okkar á bókasafnið og verða með upplestur úr bókum sínum. En báðar eru þær að gefa út bækur hjá Bókabeitunni fyrir jólin.
Bækurnar koma báðar út um mánarmótin. Önnur bókin er stórskemmtileg barnabók eftir Jenný Kolsöe „Amma óþekka“ þar sem sótt er í arfinn okkar og hin er skálduð ferðasaga eftir Ásu Hafsteinsdóttur „Vegur vindsins“ um konu sem gengur Jakobsveginn.