Þóhallur Sigurðsson kom í heimsókn til okkar í Sumarlesturinn og hafði margt skemmtilegt með sér. Hræðslupúkinn fékk að fljóta með og nokkrar skemmtilegar hárkollur og svínslærið hans Mikka refs svo og kakan góða. Skemmtileg og fræðandi heimsókn um börn og leikhús og uppfærslu Þjóðleikhússins á barnasýningum. Næsta mæting er þriðjud. 18. júní fyrri hópur kl. 11 og seinni hópur kl. 13.