Hinum árlega sumarlestri lauk með hinum frábæra ratleik, þar sem krakkarnir hlupu inni sem úti og leystu þrautir. Allir skemmtu sér stórvel, sumir unnu aðrir ekki en allir fengur Súkkulaðimjólk sem vildu. Krakkarnir eru búin að vera dugleg að lesa og hafa þegar lesið um 150 bækur á einum mánuði. Enn er hægt að skila miðum sem hengdir verða upp í barnadeildina og verður það hægt til 1. sept. Krakkar takk fyrir frábæra samveru.