Sumarlestri ársins 2017 er formlega lokið og um leið og við þökkum öllum þeim fjölmörgu börnum sem tóku þátt í sumarlestrinum í ár, langar okkur að nota tækifærið og þakka þeim einstaklingum sem lánuðu okkur Harry Potter muni sína og gerðu sumarlesturinn svo miklu skemmtilegri. Einnig viljum við þakka þeim fyrirtækjum sem gerðu okkur kleift að gera vel við börnin sem tóku þátt í sumarlestrinum.
Sýningin stendur áfram þótt sumarlestrinum sé lokið og við hvetjum ykkur til að koma við hjá okkur og skoða þessa ævintýraveröld sem sett hefur verið upp á bókasafninu.