Skemmtilegt samstarf við Listasafn Árnesinga felst í því að við setjum myndir upp í barnadeildinni frá Listasafninu, með upplýsingum um listamennina. Einnig eru spurningar til íhugunar um listaverkin.
Núna eru verk eftir tvo listamenn uppsett í barnadeildinni. Eftir Gunnlaug Óskar Scheving 1904-1972 og eftir Ástu Guðrúnu Eyvindardóttur 1959-1998.
Verið velkomin að kíkja á verkin í barnadeildinni hjá okkur.