You are currently viewing Rósa Traustadóttir sýnir í Listagjánni í desember

Rósa Traustadóttir sýnir í Listagjánni í desember

Rósa Traustadóttir sýnir í Listagjánni, sýninguna nefnir hún Litbrigði en þetta eru allt vatnslitamyndir. Þetta er fyrsta einkasýning hennar. Rósa er bókasafnsfræðingur og jógakennari og starfar við Bókasafn Árborgar. Hún fær innblástur frá náttúrunni og litirnir fá að renna saman við hugleiðslu og jóga. Sýningin stendur fram að jólum og er jafnframt sölusýning.