Rafbókasafnið
Ef þú átt kort hjá Bókasafni Árborgar hefur þú aðgang að Rafbókasafninu, rafbokasafnid.is, og þar færðu aðgang að stóru safni raf- og hljóðbóka þar sem finna má glæpi, ástir, ævintýri, ævisögur, uppskriftir og innhverfa íhugun.
Þú getur lesið rafbækurnar eða hlustað á hljóðbækurnar á vefnum eða í Libby appinu sem hægt er að hlaða niður á öll helstu snjalltæki.
Kostar aðgangur að Rafbókasafninu?
Ef þú átt bókasafnskort hjá Bókasafni Árborgar, eða öðrum aðildarsöfnum Rafbókasafnsins, færð þú frían aðgang að Rafbókasafninu! Sjá lista yfir aðildarsöfn hér.
Hvernig fæ ég aðgang að Rafbókasafninu?
Safnið finnurðu á rafbokasafnid.is og þar einfalt skráningarferli. Nota þarf númerið á bókasafnskortinu og lykilorð til þess að virkja aðganginn. Lykilorðið er það sama og er notað hjá leitir.is en ef þú ert ekki með virkt lykilorð þar þá getur bókavörður stillt það fyrir þig í afgreiðslunni eða með því að hringja í 480-1980. Til þess að nota Rafbókasafnið í síma eða í spjaldtölvunni mælum við með appinu Libby sem er frítt á iTunes, Google Play (Android) og í verslun Microsoft Store (Windows 10).
Hvað má hafa bækur lengi í láni?
Hverja bók má hafa að láni í 7, 14 eða 21 dag. Bók sem hefur verið tekin að láni skilast sjálfkrafa að lánstíma liðnum og því er engin hætta á dagsektum. Auðvitað er líka hægt að skila fyrr. Ef enginn er að bíða eftir að bókin losni getur þú framlengt lánstímann, sá möguleiki opnast 72 klukkustundum áður en bókinni er skilað sjálfkrafa.
Hvað má fá margar bækur að láni í einu?
Þú getur haft 21 bók að láni í einu og sett inn 21 fráttekt.
Bókin sem mig langaði að lesa er ekki á Rafbókasafninu. Hvað skal þá gera?
Þá er hægt að senda inn innkaupatillögu, á rafbokasafnid.is. Hægt er að mæla með kaupum á 3 bókum á 14 daga fresti.
Þarf að tengast netinu til að lesa eða hlusta á rafbækur?
Hægt er að hlaða bókum niður í Libby appinu eða Adobe Digital Editions forritinu.
Er hægt að nota Rafbókasafnið án þess að hlaða niður öppum eða forritum?
Hægt er að lesa rafbækur eða hlusta á hljóðbækur frá Rafbókasafninu í vafra í tölvum, spjaldtölvum og snjallsímum og því er ekki nauðsynlegt að hlaða niður neinum öðrum forritum til þess.
Ef þú hefur einhverjar spurningar eða ábendingar varðandi Rafbókasafnið sendu þá póst á rafbokasafnid@borgarbokasafn.is.