Nú stendur yfir í Listagjánni ljósmyndasýningin Óskir íslenskra barna, sem er gjöf ljósmyndarans Ástu Kristjánsdóttur og Barnaheilla – Save the Children á Íslandi til barna á Íslandi. Ljósmyndirnar byggja á reynslusögum úr samtíma íslenskra barna sem hafa upplifað ofbeldi, vanrækslu, einelti eða fátækt og sýna myndirnar óskir barnanna um betra líf. Opið er á sýninguna á opnunartíma bókasafnsins, alla virka daga 10-19 og 11-14 á laugardögum. Við hvetjum alla til að koma og skoða.