Komið er nýtt útlit á Gegni. Nýi vefurinn er unninn í sama umhverfi og leitir.is en hann hefur sitt eigið útlit og á honum er hægt að leita eingöngu í safnkosti Gegnis. Slóðin er http://leitir.is/Gegnir eða http://gegnir.is. Hægt verður að ferðast á milli gegnir.is og leitir.is með einföldum hætti. Græni liturinn verðuráfram einkennislitur leitir.is en gegnir.is er auðkenndur með bláum lit. Þetta er gert til að auðvelda notendum að átta sig á hvar þeir eru staðsettir. Undir „velja safn“ geta notendur leitað í ákveðnu safni og birtast þá eingöngu eintök þess safns.