You are currently viewing Ný sýning í Listagjá Bókasafnsins

Ný sýning í Listagjá Bókasafnsins

Christine Gísladóttir sýnir ljósmyndir í ramma og ljósmyndir saumaðar á púða í Listagjánni í mars.
Christine er lærður blómaskreytir og er að læra ljósmyndun í Ljósmyndaskólanum. Þessi sýning fjallar um mennina og alla hlutina sem við öll skiljum eftir okkur. Sýningin er opin á opnunartíma bókasafnsins alla virka daga frá kl. 10 – 19 og á laugardögum frá kl. 11 – 14.