Nauðsynlegt að breyta lykilorði á gegni.is

Kæru lánþegar, nú verða allir að breyta lykilorðum sínum sem þeir nota til að komast inn á mínar síður í gegnir.is og leitir.is, ef þau hafa verið óbreytt frá upphafi. Lykilorðin mega alls ekki innihalda kennitölu eða hluta úr kennitölu, en skulu innihalda 6-8 tölustafi. EF ekki verður búið að breyta lykilorðum fyrir 18. júlí mun Landskerfi Bókasafna sem sér um kerfið okkar, breyta öllum lykilorðum í einhverja talnarunu. Einnig er öllum heimilt að breyta notendanafni ef vill.

Aðferð:
Farið inn á gegnir.is og skráir þig inn með gamla lykilorðinu
Minar síður
Stillingar
Mitt lykilorð, þar breytir þú í 6-8 tölustafa lykilorð
Vistar