Verulega spennandi dagskrá þar sem Úlfhildur Dagsdóttir fjallar um vampírubækur og hrollvekjur. Rithöfundarnir Birgitta Elín Hassell og Marta Hlín Magnadóttir fjalla um bókaflokkinn Rökkurhæðir og lesa upp úr væntanlegri bók. Spurningar og spjall í lokin. Hryllilega flottar skreytingar en Rakel og Anika starfsmenn safnsins sáu um þær. Verið velkomin!