Kæru vinir, bókasafnið hefur nú aftur tekið við Upplýsingamiðstöð ferðamanna í Árborg. Það er í mörg horn að líta núna og við ætlum að taka okkur vinnudag á föstudaginn en mætum galvaskar til leiks kl. 11 á laugardaginn. Endilega látið þetta berast til bókasafnsnotenda svo enginn komi fýluferð til okkar.