You are currently viewing Leshringurinn er byrjaður!

Leshringurinn er byrjaður!

Leshringurinn er búinn að hittast einu sinni þetta haustið. Hópurinn hittist hér á bókasafninu annan  fimmtudag í mánuði kl. 17:15. Núna er verið að lesa Ljósmóðir af guðs náð eftir finnska höfundinn Katja Kettu. Næst þegar hringurinn hittist þann 8. október verður bókin krufin til mergjar.

 

Fimmtudaginn 12. nóvember verður byrjað að lesa Hrafninn eftir Vilborgu Davíðsdóttur.

Leshringurinn er öllum opinn og kaffisopi í boði.