Gunnar Gränz er listamaður júlímánaðar í Listagjánni. Að þessu sinni fjallar sýning Gunnars um veröld sem var – hús sem eitt sinn stóðu hér á svæðinu en eru nú, einhverra hluta vegna, horfin.
Sýningin er tileinkuð Karlsskála, sem stóð við Kirkjuveg 5, og þeim er reistu hann fyrir 75 árum þegar heimsstyrjöldin síðari stóð sem hæst.
Hvetjum ykkur til að kíkja í kjallarann og skoða fortíðina um leið og þið fáið ykkur kaffisopa hjá okkur