Inga Jónsdóttir forstöðumaður Listasafns Árnesinga kom í heimsókn til okkar í sumarlesturinn og fræddi krakkana um myndlýsingu. Þetta voru mjög áhugasamir krakkar sem hlustuðu og fengu betri innsýn inn í verk myndskreyta. Við skoðuðum sýninguna Þetta vilja börnin sjá saman og Inga fór yfir mismunandi útfærslur listamannanna. Síðan var auðvitað dregið úr happadrættinu og allir fengu kókómjólk. Virkilega skemmtilegur dagur og samtals 65 börn komu þennan dag í sumarlesturinn. Næst hittast hóparnir þann 19. júní fyrri hópur kl. 11-12 og seinni hópur kl. 13-14.