Færeyjar út úr þokunni.

Fimmtudagurinn 30. nóvember verður góður dagur. Þá mun Þorgrímur Gestsson, rithöfundur, verða gestur Norræna félagsins í Bókasafni Árborgar á Selfossi klukkan 17:00 og kynna bók sína Færeyjar út úr þokunni.

Þorgrímur Gestsson tók kennarapróf árið 1967 en sneri sér að blaðamennsku eftir stuttan kennaraferil og starfaði við dagblöð, tímarit og Ríkisútvarpið í þrjá áratugi. Síðustu tvo áratugina hefur hann stundað sjálfstæð ritstörf og sent frá sér 15 heimildabækur af ýmsum toga.

Það er því vel til fundið að eiga gæðastund á bókasafninu fimmtudaginn klukkan 17:00 og fræðast hjá Þorgrími um Færeyjar, bæði land og þjóð.

Hlökkum til að sjá ykkur!