Ekki þarf að leita langt yfir skammt ef það á að baka því bókasafnið er svo vel í stakk búið að vera með hin ýmsu kökuform til útláns. Köngulóarmaðurinn, Svampur Sveinsson, Dóra Landkönnuður og mörg fleiri bíða spennt eftir að geta aðstoðað við hvaða kökuhóf sem er í vændum. Sjáumst!