Unnur Sigursteinsdóttir sýnir dúka í Listagjánni sem hún saumaði á árunum 2011 – 2014.
Alls konar fallegir dúkar fyrir hvers konar tilefni. Unnur er fædd og uppalin á Selfossi. Hún var virk í félagsstarfi og starfaði í áratugi með Kvenfélagi Selfoss og í ITC deildinni á Selfossi. Hún hefur frá unga aldri verið mikið fyrir hverskonar hannyrðir. Dúkarnir sem hún sýnir núna eru aðeins brot af því sem hún hefur unnið frá árinu 2011. Sjón er sögu ríkari.