Umfjöllun um bókaútgáfu síðasta árs.
Jón Yngvi Jóhannsson bókmenntafræðingur mun fjalla um bókaútgáfu síðasta árs á fjórum bókasöfnum á Suðurlandi í vikunni. Þetta er hluti af samstarfsverkefni bókasafnanna sem styrkt er af Menningarráði Suðurlands. Án efa verður ánægjulegt að hlusta á Jón Yngva fjalla um jólabókaflóðið og fleiri bækur sem komu út á árinu og spjalla á eftir.
Umfjöllunin verður fimmtudaginn 21. febrúar kl. 18:00 á Bæjarbókasafni Ölfuss í Þorlákshöfn og kl. 20:00 á Bókasafninu í Hveragerði¨, síðan föstudaginn 22. febrúar kl. 17:30 á Bókasafni Árborgar, Selfossi og kl. 20:00 á Héraðsbókasafni Rangæinga, Hvolsvelli.
Jón Yngvi er bókmenntafræðingur frá H.Í. og stundaði framhaldsnám við Kaupmannahafnarháskóla. Hann hefur gagnrýnt bækur í sjónvarpi, blöðum og tímaritum, haldið fjölda fyrirlestra og kennt bókmenntir við Háskóla Íslands. Hann er einn af höfundum íslenskrar bókmenntasögu, þar sem hann skrifaði um bókmenntir og stjórnmál á fjórða áratug tuttugustu aldar og íslenska skáldsagnagerð frá 1970 til samtímans.
Verið velkomin á bókasöfnin ykkar!
Bókasafn – heilsulind hugans