Bókasafnið tekur við bókum að uppfylltum eftirtöldum skilyrðum:
Bækur skulu vera hreinar og vel með farnar og mega ekki lykta illa.
Engin skilyrði skulu fylgja bókagjöfinni.
Athygli er vakin á því að starfsfólk bókasafnsins yfirfer og velur úr það efni sem talið er henta hlutverki safnsins og þörfum lánþega. Það efni sem ekki nýtist í safnkostinn er selt gegn vægu gjaldi á árlegum bókamarkaði.