You are currently viewing Björn Rúríksson sýnir í Listagjánni

Björn Rúríksson sýnir í Listagjánni

Í Listagjá Bókasafns Árborgar á Selfossi hefur verið sett upp Ljósmyndasýning með verkum Björns Rúrikssonar sem stendur yfir til 1. júlí 2013. Björn er hagfræðingur og jarðfræðingur frá Háskóla Íslands, hefur flug-og rútupróf og talar fjölmörg tungumál. Hann hefur verið ötull talsmaður íslenskrar náttúru í gegnum tíðina og hefur haldið fjölmarga fyrirlestra og yfir 30 sýningar á ljósmyndum sínum í Bandaríkjunum, Japan, víða um Evrópu og hér heima. Greinar og ljósmyndir Björns hafa birst í ýmsum bókum og tímaritum, m.a. Royal Geographical Magazine, Time-Life og Geo.

Björn hefur ljósmyndað náttúru Íslands á landi og úr lofti frá árinu 1970. Hann á að baki um hálfa milljón kílómetra í loftmyndatökum yfir Íslandi en fyrst og fremst hefur hann myndað Ísland á landi. Hann hefur gefið út bækur með ljósmyndum sem eru m.a. til sýnis í Listagjánni.

Björn hefur búið á Selfossi frá árinu 2006 og sér nú um rekstur ferðaþjónustu, sem fararstjóri og leiðsögumaður.