Barnabókahátíð Bókabæjanna austanfjalls verður haldin með pompi og pragt þann 18. og 19. september næstkomandi. Hér má sjá dagskrá hátíðarinnar á pdf skjali, en hún hefst formlega föstudaginn 18. september klukkan 16:00, þegar Sigrún Eldjárn mætir til okkar í Bókasafn Árborgar á Selfossi og les úr bókum sínum fyrir börnin. Á laugardeginum verður síðan stanslaus gleði frá klukkan 13:20 þegar gengið verður fylktu liði frá Bókasafni Árborgar í Fjölbrautaskóla Suðurlands þar sem við tekur, skapandi skemmtun með ívafi af allskyns gríni og glensi fyrir börnin.
Hlökkum til að sjá ykkur sem flest 🙂