Að skrifa fyrir börn – ókeypis námskeið í skapandi skrifum

Bókabæirnir austanfjalls og Gullkistan á Laugarvatni bjóða upp á námskeið í skapandi skrifum næstkomandi laugardag 26. ágúst. Viðfangsefni og aðferðir snúast um það að skrifa fyrir börn. Um er að ræða tvö námskeið sama daginn og hefst það fyrra klukkan 10 um morguninn í Bókasafni Árborgar og stendur til klukkan 13. Það námskeið er ætlað fyrir fullorðna. Seinna námskeiðið hefst í bókasafninu í Hveragerði klukkan 14 og er ætlað fyrir börn á aldrinum 8 til 12 ára og stendur til klukkan 16. Námskeiðið er ókeypis!

Leiðbeinandi er írski rithöfundurinn E. R. Murray eða Elizabeth Rose Murray sem dvelur nú í híbýlum Gullkistunnar á Laugarvatni. Hún skrifar jöfnum höndum ljóð og smáar sögur sem birst hafa víða en leggur þó höfuðáherslu á að skrifa fyrir börn og unglinga. Fyrsta unglingasaga hennar kom út árið 2016 og heitir Karamelluhjartað. Saga hennar Lærdómshjartað sem er skrifuð fyrir börn á aldrinum 10 til 12 ára var tilnefnd til írsku barnabókaverðlaunanna árið 2017. Á Gullkistunni leggur Elizabeth lokahönd á nýjustu skáldsögu sína fyrir unglinga sem hún kallar The Book of Revenge eða Hefndarbókin.