You are currently viewing Útgáfuhóf á Bókasafni Árborgar Selfossi mánudaginn         16. nóvember kl. 16:30

Útgáfuhóf á Bókasafni Árborgar Selfossi mánudaginn 16. nóvember kl. 16:30

  • Post published:

Nýjasta barnabók Sigríðar Etnu Marinósdóttur er komin út🥳, Heimir hugrakki & lífið í leikskólanum. Freydís Kristjánsdóttir myndskreytir bókina.

Í tilefni þess bíður Sigríður í útgáfuhóf mánudaginn 16. nóvember. Þar mun hún lesa úr bókinni og hægt verður að kaupa hana á sérstöku útgáfuhófstilboði.

Heimir hugrakki & lífið í leikskólanum er fimmta barnabókin hennar. En það eru 5 ár síðan síðasta bók kom út og gleðin því mikil núna.

Bókin fjallar um músina Heimi sem læðist inn í leikskólann Álfheima, hér á Selfossi. Þar er líf og fjör og nóg um að vera. Það verður uppi fótur og fit þegar uppgötvast að það sé komin mús inn í skólann. Hefst þá leitin að Heimi.