Þá er sumarlestri 2012 lokið. Yfir sjötíu krakkar tóku þátt og gerðu þennan sumarlestur frábæran. Það var mikið lesið, föndrað, hlustað, fræðst og leikið. Hópurinn las samtals 276 bækur sem er frábær árangur á fjórum vikum. Til hamingju krakkar, hlökkum til næsta sumarlesturs með ykkur! Fleiri myndir á facebook síðu safnsins.