You are currently viewing Krossar og englar í útlánssalnum

Krossar og englar í útlánssalnum

Handverkssýning Arnheiðar Jónsdóttur sem var í Listagjánni, hefur nú verið færð upp í útlánssalinn.  Hún hefur verið í útskurðarnámi hjá Þuríði Blöku Gísladóttur frá árinu 2004.  Einnig hefur hún lært undirstöðuatriði í glerlist hjá Hilmu Marínósdóttur. Tvö undanfarin ár hefur Arnheiður eingöngu sinnt tréskurði og sérhæft sig nokkuð í fleygskurði, einkum á krossum.  Hún hefur tekið þátt í vorsýningum eldri borgara á Selfossi frá árinu 2005 en þetta er fyrsta einkasýning hennar.