Búið er að setja upp sýninguna Þetta vilja börnin sjá sem er farandsýning frá Gerðubergi. Vegna stærðar sinnar dreifist hún bæði í barnadeildina og í Listagjánni. Þetta vilja börnin sjá! er sýning á myndskreytingum úr nýútkomnum íslenskum barnabókum og hefur slík sýning verið haldin árlega í Gerðubergi frá árinu 2002. Þátttakendur keppa jafnframt um íslensku myndskreytiverðlaunin sem kennd eru við Dimmalimm. Dómnefnd velur eina bók og voru úrslitin kunngerð í Gerðubergi við opnun sýningarinnar.
Kristín Ragna Gunnarsdóttir
hlaut Dimmalimm – íslensku myndskreytiverðlaunin 2011
fyrir myndlýsingar í bókinni Hávamál sem Þórarinn Eldjárn endurorti.
Forlagið – Mál og menning gefur bókina út.