You are currently viewing Sumarlestur hófst með stæl

Sumarlestur hófst með stæl

Tæplega sextíu krakkar mættu í sumarlesturinn, mikið fjör í safninu. Öll voru þau prúð og áhugasöm. Þau fengu gögnin sín farið var yfir helstu atriði. Dregið úr happdrættinu og fjórir heppnir fengu verðlaun, en öll fengu þau kókómjólk. Síðan voru þrautir og hægt að föndra forsíðu sem síðan verða til sýnis í safninu. Markmið sumarlestrar er að halda áfram að lesa og við ætlum að safna saman öllum lestrarmiðunum og sjá hvað við lesum mikið í sameiningu.