Lán frá öðrum bókasöfnum

Hvað er til ráða ef bókin er ekki til á þínu bókasafni?

Er bókin til á öðru bókasafni ?

Ef bókin sem þú leitar að er t.d. bara til í Amtsbókasafninu á Akureyri getur þú fengið hana senda í millisafnaláni til okkar. Þú getur sent tölvupóst á afgreidsla@arborg.is og beðið um bókina, hringt í bókasafnið þitt og beðið um bókina eða ferð inn á leitir.is og sendir inn beiðnina. 

Til þess að gera þetta inn á leitir.is þarft þú að byrja á að skrá þig inn á Leitir.is, finnur bókina og velur „Millisafnalán“. Athugaðu að bókasafnið tekur gjald fyrir hvert millisafnalán samkvæmt gjaldskrá og er 2.100 kr.

Hér eru nánari leiðbeiningar, skref fyrir skref, frá Landskerfi bókasafna.