You are currently viewing Jane Austen umvafin listsaumi eftir Hörpu Jónsdóttur

Jane Austen umvafin listsaumi eftir Hörpu Jónsdóttur

  • Post published:

Vorsýning Bókasafns Árborgar er að þessu sinni listsaumur Hörpu Jónsdóttur en hún vinnur úr lopanum húfur, hatta, hjörtu og saumar listilega í þetta fagran útsaum sem vart á sína hliðstæðu. Jane Austen fær að vera innan um þetta fínerí enda algerlega í anda þess rómantíska tímabils.

Sýningin nær hámarki sínu á Vori í Árborg en þá endum við með teboði í safninu þann 19. maí sem nánar verður auglýst síðar.