Skráning í sumarlestur er hafin. Sendið póst á netfangið afgreidsla@arborg.is með upplýsingum um nafn, kennitölu og heimilisfang barns ásamt upplýsingum um netfang og símanúmer foreldra/forráðamanns. Einnig liggja þátttökublöð í afgreiðslu bókasafnsins.
Sumarlestur hefur verið haldinn í júní á hverju ári, frá árinu 1993, í Bókasafni Árborgar á Selfossi. Sumarlestur er ókeypis lestrarhvetjandi námskeið fyrir krakka í 2. – 5. bekk þau mega vera yngri eða eldri en viðmiðið er að þau séu orðin stautfær í lestri.
Tveir hópar hafa verið í sumarlestri og hittast þeir einu sinni í viku þar sem börnin fá ýmist fræðslu eða skemmtun. Í hverri viku er dregið úr happdrætti þar sem börnin fá skemmtilega vinninga.
Sumarlesturinn endar með miklu fjöri í ratleik þar sem krakkarnir leita að vísbendingum og leysa þrautir.
Markmið sumarlestrar er að viðhalda lestrarhæfni barna yfir sumartímann, örva áhuga þeirra á lestri skemmtilegra bóka og tengja heimsókn á bókasafn við skemmtilegheit í huga barnanna.
Í sumar er þemað Risaeðlur.
Sumarlesturinn hefst fimmtudaginn 6. júni k. 13:00 og þá mæta allir sem ætla að taka þátt í sumarlestrinum en síðan verður börnunum skipt upp í hópa fyrir og eftir hádegi eftir því hvað hentar. Fyrri hópurinn frá klukkan 11:00-12:00 og seinni hópurinn frá klukkan 13:00-14:00. Sumarlesturinn er alla fimmtudaga í júní frá og með 6. júní.
Skráning í sumarlestur er nauðsynleg.
Hlökkum til að sjá ykkur sem flest í sumarlestri bókasafnsins í júní!