Eitt af því sem kemur okkur í jólaskap er allt listafólkið sem stígur á stokk í desember og sýnir hvað í því býr. Við á bókasafninu förum ekki varhluta af því og í dag 6. desember, klukkan 16:30 ætlar Upprisukórinn að mæta á bókasafnið og syngja fyrir gesti. Þið skuluð ekki missa af þeim. Þau eru dásamleg!