You are currently viewing Rafbókasafnið opnar 1. júní – úrval af erlendum raf- og hljóðbókum!

Rafbókasafnið opnar 1. júní – úrval af erlendum raf- og hljóðbókum!

Í Rafbókasafninu er úrval raf- og hljóðbóka á erlendum tungumálum.  Flestar bækurnar eru á ensku en ráðgert er að í framtíðinni verði einnig hægt að fá íslenskt efni lánað.

 

 

  • Þú getur valið hvort þú færð bók að láni í 7, 14 eða 21 dag.
  • Þú getur haft 5 bækur að láni í einu og sett inn 7 frátektir.
  • Bók sem hefur verið tekin að láni skilast sjálfkrafa að lánstíma liðnum og því er engin hætta á dagsektum.  Auðvitað er líka hægt að skila fyrr.

Skráning í Rafbókasafnið:

Farðu inn á vef Rafbókasafnsins: Rafbókasafnið (opið frá 1. júní)

Þú þarft gilt bókasafnskort og PIN-nr hjá aðildarsafni.

Þú skráir þig inn í safnið með strikanúmeri á bókasafnskortinu.

Viljir þú lesa eða hlusta án þess að vera nettengd/ur þarf að sækja Overdrive appið eða Adobe Digital Editions forritið og hlaða bókinni niður.

Overdrive appið:  Sækið appið í App Store, Google Play og Windows Store.

Sækið Rafbókasafnið í “Add a Library”.

Skráið ykkur inn með strikanúmeri og PIN-númeri.

Lesbretti:  Eingöngu er stuðningur við lesbretti sem nota e-Pub formið. EKKI hægt að lesa bækur Rafbókasafnsins á Kindle, að Kindle fire undanskildu. Stofna þarf Adobe ID-aðgang og sækja forritið Adobe Digital Editions ef ætlunin er að lesa rafbók á lesbretti.