Gunnar Gränz sýnir vatnslitamyndir í Listagjánni hjá okkur. Sýningin nefnist Ágrip í litum : fast form!
Gunnar er fæddur í Vestmannaeyjum árið 1932 en hefur búið á Selfossi frá árinu 1942. Hann hefur aldrei gengið í listaskóla, lítur á sig sem alþýðulistamann sem hefur lært í skóla lífsins og sótt sér menntun til íslenskrar náttúru og annarra listamanna í landinu.
Sýningin er opin á afgreiðslutíma bókasafnsins!